Persónuverndarupplýsingar · 29. september 2026
Hvernig KARTO fer með gögn
Hvaða upplýsingar eru skráðar
KARTO skráir þær upplýsingar sem þú gefur upp, svo sem nafn, síma, netfang, fyrirtæki og þjónustulýsingu. Kerfið geymir einnig reikningsnúmer, inneign, færslusögu, tilvísanir, QR-tengingar, tilkynningaval og öryggisupplýsingar sem verða til við notkun.
Tilgangur
Gögn eru notuð til að stofna og reka reikning, framkvæma og rekja færslur, koma í veg fyrir misnotkun, veita aðstoð og bæta prufukerfið. Upplýsingar eru ekki seldar til auglýsenda.
Miðlun og vinnsluaðilar
Nauðsynleg gögn geta verið unnin af tæknilegum þjónustuaðilum sem hýsa eða verja kerfið. SMS og tölvupóstsendingar eru ekki virkar fyrr en sérstaklega merkt sendingarþjónusta hefur verið tengd.
Varðveisla og öryggi
Gögn eru varðveitt á meðan reikningur eða prufukeyrsla er virk og lengur þegar það er nauðsynlegt vegna öryggis, ágreinings eða lagaskyldu. Aðgangur er takmarkaður og færslur eru skráðar, en ekkert tölvukerfi er fullkomlega áhættulaust.
Þín réttindi
Þú getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum, leiðréttingu eða eyðingu þar sem lög og nauðsynleg færsla- og öryggisskráning leyfa. Þú getur einnig óskað eftir takmörkun vinnslu eða gert athugasemd.
Hafðu samband
Sendu persónuverndar- eða gagnabeiðni á kartocredit@gmail.com. Tilgreindu netfang reikningsins svo hægt sé að staðfesta beiðnina.