| Rósmarínkartöflur |
|
Uppskriftin er fyrir 4 8 stk. Þykkvabæjar Grillkartöflur 1 msk. saxað rósmarín, ferskt 1/2 dl ólífuolía salt Skerið kartöflurnar í 3 mm þykkar skífur, dreifið í smurða ofnskúffu. Penslið með ólífuolíu og stráið yfir salti og rósmarín. Bakið við 180¡C í 12 mínútur á blæstri (200¡C án blásturs). |