| Bökuð grill kartafla með púrrulauk |
|
Uppskriftin er fyrir 4 4 Þykkvabæjar Grillkartöflur 1 lauk,smátt saxaður 1/2 púrrulaukur, smátt saxaður 1 msk. olívuolía 1 msk. smjör 1 tsk. jurtasalt 1/2 tsk svartur pipar 2 hvítlauksrif marin 1 tsk. tímían 200 g rjómaostur 2 eggjarauður hnefafylli steinselja 4 msk. rifin ostur Penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á þær með prjóni, bakið við 200¡C í 2o mín eða 15 mín á grilli ath. snúið þeim af og til ef grillið er notað. á meðan þær bakast steikið saxaðan lauk, hvítlauk og púrrulauk við vægan hita un laukurinn er orðin meyr. Bætið tilheyrandi kryddi, ostinum og eggjarauðunum saman við laukhræruna. Hrærið öllu vel saman, haldið volgu. Þegar kartöflurnar eru bakaðar skerið þær í tvennt eftir endilöngu takið inna úr þeim kartöflukjötið og búið til stöppu, blandið öllu saman og fyllið kartöfluskeljarnar með fyllingunni. Stráðið steinselju og osti yfir hverja fyllingu og bakið í ofni við 160¡C í 15 mínútur. |