Bakaðar forsoðnar grillkartöflur
Uppskriftin er fyrir 4

2 msk majónes
a dós kotasæla
1 msk. sinnep
2 msk. graslaukur
1 tsk. jurtasalt
1/2 tsk. hvítur pipar
4 msk. kurlaður ananas


Takið filmuna af bakkanum penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á þær með prjóni setjið bakkan inni 200C heitan ofn í 20 mínútur. Á Útigrilli takið Grillkartöflurnar úr bakkanum penslið með olíu stingið gat á þær með prjóni og setjið á grillið í 15 mínútur snúið af og til. Aldrei að setja Bökunar eða Grillkartöflur í álpappír þá,sjóðið þið þær að mestu og fáið ekki þetta góða bragð. Með er gott að setja ofaní þær,smjör, kryddsmjör,sýrður rjómi allt eftir smekk eða ýmsar sósur t.d. þessi.

Hrærið saman majónesi, sinnepi, kotasælu og tilheyrandi kryddi. Bætið við kurluðum ananasi látið standa í 1- 2 tíma í kæli Þessa sósu er gott að eiga í ísskápnum.