| Bakaðar grillkartöflur með reyktum laxi og ostasósu |
|
Uppskriftin er fyrir 4 4 stk. Þykkvabæjar Grillkartöflur 100-120 g reyktur lax sneiddur í 8 miðlungsstórar sneiðar 8 stk. salatblöð 12 stk. spínatblöð olía til penslunar Ostasósa 50 g sýrður rjómi 50 g rjómaostur 50 g gráðaostur 2 msk. söxuð fersk steinselja 2 msk. smátt skorinn graslaukur Matreiðsla Penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á híðið með prjóni, bakið við 200¡C í 20 mín. Ostasósa Blandið saman í matvinnsluvél, sýrðum rjóma, rjómaosti, gráðaosti, steinselju og graslauk. Hrærist vel í 3-5 mínútur. Spínatblöðin skoluð í köldu vatni og skorin í strimla. Salatblöðin skoluð í köldu vatni. Þegar kartöflurnar eru fullbakaðar, eru þær teknar úr ofninum, látnar rjúka lítið eitt, skornar í tvennt, holaðar að innan og spínatinu blandað saman við kartöflukjötið. Sósa sett í kartöfluhýðið og síðan eru spínatkartöflurnar settar aftur í skelina. Sósa sett þar ofan á og að lokum er reykt laxasneið, rúllað í litla rós, sett ofan á. Meðlæti, Salatblöð. |